8. apr. 2016

Staðfest niðurstaða úr skuldabréfaútboði Garðabæjar

Útboð á skuldabréfum Garðabæjar fór fram 4. apríl 2016 í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka
  • Séð yfir Garðabæ

Útboð á skuldabréfum Garðabæjar fór fram 4. apríl 2016 í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Boðin voru verðtryggð jafngreiðsluskuldabréf til 15 ára í nýjum opnum flokki GARD 16 01 að andvirði allt að 1.000 milljónum króna. Tilboð bárust fyrir samtals 1.820 milljónir króna með ávöxtunarkröfu á bilinu 3,04-3,53%.

Bæjarstjórn Garðabæjar staðfesti 7. apríl 2016 þá samþykkt bæjarráðs frá 5. apríl 2016 að taka tilboðum að andvirði 720 milljónum króna á ávöxtunarkröfunni 3,15%.

Fyrirhugað er að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands og verður þá fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara.

Sjá frétt frá 5. apríl 2016 http://www.gardabaer.is/forsida/frettir/frett/2016/04/05/Nidurstada-ur-skuldabrefautbodi-Gardabaejar-/