18. mar. 2016

Lokahátíð Stóru upplestarkeppninnar í Garðabæ

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju þriðjudaginn 15. mars sl. Nemendur úr sjöunda bekk í Garðabæ og Seltjarnarnesi kepptu á lokahátíðinni.
  • Séð yfir Garðabæ

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju þriðjudaginn 15. mars sl. Nemendur úr sjöunda bekk í Garðabæ og Seltjarnarnesi kepptu á lokahátíðinni.

Á lokahátíðinni fengu 12 nemendur í sjöunda bekk úr Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Vífilsskóla og Valhúsaskóla (grunnskóli Seltjarnarness) að spreyta sig á upplestri á fyrirfram ákveðnum texta.  Í ár var lesið upp úr skáldsögunni Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og ljóð eftir Guðmund Böðvarsson. Í síðustu og þriðju umferð fengu nemendur að lesa ljóð að eigin vali.

Að loknum upplestri var boðið upp skemmtiatriði frá skólunum sem tóku þátt, tónlistarflutning og söngatriði. Í lok hátíðar afhenti Gunnar Einarsson öllum lesurunum bók frá Félagi íslenskra bókaútgefenda sem viðurkenningu fyrir þátttökuna.  Allir þátttakendur stóðu sig vel og erfitt var að velja þrjá lesara úr hópnum.  Formaður dómnefndar var að þessu sinni Björk Einisdóttir frá samtökunum Röddum og hún tilkynnti um val dómnefndar í lokin og afhenti sigurvegurunum viðurkenningu Radda samtaka um vandaðan upplestur og framsögn og peningaverðlaun frá styrktaraðilum keppninnar.

Í fyrsta sæti var Júlíana Karitas Jóhannsdóttir úr Flataskóla, í öðru sæti var Bryndís Brynjúlfsdóttir úr Flataskóla og í þriðja sæti var Júlía Óskarsdóttir úr Valhúsaskóla.

Stóra upplestrarkeppnin er 20 ára á árinu

Stóra upplestarkeppnin er 20 ára á árinu en með árunum hafa fleiri sveitarfélög tekið þátt í keppninni. Garðabær hefur tekið þátt í keppninni nánast frá upphafi eða í 19 ár.  

Lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar eru haldnar um land allt í mars mánuði en undirbúningur hefst formlega á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember og nemendur læra að leggja rækt við góðan upplestur. Hátíðarhlutinn er það sem kalla mætti hina eiginlegu „keppni“. Haldin er upplestrarhátíð í hverjum skóla í lok febrúar þar sem tveir nem­endur eru valdir til áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans. Stóru upplestrarkeppni lauk svo formlega með lokahátíðinni sem að þessu sinni var haldin á Seltjarnarnesi í mars. Garðabær og Seltjarnarnes hafa undanfarin ár verið í samstarfi um lokahátíðina og skiptast á að halda lokahátíðina en keppnin er haldin á þriggja ára fresti á Seltjarnarnesi.  Vefur Stóru upplestrarkeppninnar