Nýr kortavefur með gagnlegum upplýsingum
Á nýjum kortavef Garðabæjar á slóðinni map.is/gardabaer er hægt að skoða bæði loftmynd af Garðabæ og götukort af bænum. Þar er einnig hægt að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar m.a. um staðsetningu lagna, snjómokstur, fornminjar og skipulag í Garðabæ. Á vefnum er einnig hægt að nálgast teikningar af húsum.
Leiðbeiningar
Til að nota hina ýmsu möguleika á kortinu þarf að:
- haka í viðkomandi reit í upplýsingaglugganum efst til hægri og þá birtast upplýsingarnar á kortinu.
Snjómokstur
Til að sjá t.d. hvaða götur njóta forgangs í snjómokstri er smellt á "snjómokstur" í upplýsingaglugganum. Þá er hægt að velja fjóra möguleika með því að haka við þá, þ.e. stígar, forgangur 1 og forgangur 2 og götur, forgangur 1 og 2.
Teikningar af húsum
Til að kalla fram teikningu af húsi þarf að:
- stækka kortið svo húseignin sjáist með því að smella nokkrum sinnum á + takkann neðst til hægri.
- haka í „Teikningar af byggingum“ í upplýsingaglugganum
- smella á appelsínugula depilinn á viðkomandi húsi
Frekari leiðbeiningar er hægt að fá hjá þjónustuveri Garðabæjar í síma 525-8500 eða með því að senda póst á gardabaer@gardabaer.is