11. jan. 2016

Snjóhreinsun og hálkueyðing í Garðabæ

Upplýsingar um forgangsröðun í snjómokstri, söndun og söltun í Garðabæ eru nú aðgengilegar á nýjum landupplýsingavef Garðabæjar, map.is/gardabaer
  • Séð yfir Garðabæ

Í Garðabæ hefst snjómokstur kl. 4 að nóttu þegar snjóað hefur og unnið er eftir forgangsáætlun. Starfsmenn þjónustumiðstöðvar og verktakar vinna hörðum höndum að því að halda öllum aðalleiðum opnum, hvort sem um er að ræða götur eða stíga. Húsagötur koma þar á eftir og eru hreinsaðar eins hratt og hægt er á hverjum tíma.  

Hér að neðan má finna upplýsingar um skipulag í snjómokstri, söndun og söltun í Garðabæ. Einnig er hægt að skoða á korti þær götur og stíga sem eru í forgangi varðandi snjómokstur. Kortið er staðsett á map.is/gardabaer og haka þarf í "Snjómokstur", þá koma upp leiðirnar sem farnar eru og hverjar eru í forgangi. Ef smellt er á "i" sést hvað litirnir tákna.  

Snjóvakt frá 1. nóvember til 1. apríl 

Snjóvakt er í Garðabæ frá 1. nóvember til og með 1. apríl og eru þá starfsmenn og verktakar til taks utan hefðbundins vinnutíma. Þegar snjór fellur eða hálka myndast er unnið eftir fyrirliggjandi viðbragðsáætlun og starfsmenn og verktakar ræstir út klukkan 4.00 að nóttu til sé talin ástæða til.

Verkefni við snjóhreinsun og hálkueyðingu má i stórum dráttum skipta eftir því hvort um er að ræða götur eða stíga, gangstéttar eða tröppur. Ólíkar aðstæður kalla á mismunandi tækjakost og aðferðir en markmiðið er það sama; að tryggja greiðar leiðir.

Umferðargötur - snjóhreinsun og hálkueyðing

Á umferðargöturnar fara stórtæk snjóruðningstæki sem komast hratt yfir og salt er notað til hálkueyðingar. Markmiðið er að stofnbrautir, strætisvagnaleiðir, fjölfarnar safngötur, bílaplön við stofnanir, stofnanalóðir og aðkoma að skólum og leikskólum sé orðið greiðfært fyrir kl. 7.30 að morgni. Í framhaldi er oft farið í húsagötur sem eru hreinsaðar séu þær orðnar þungfærar, snjódýpt talsverð eða hálka og þá er saltað eða sandað eftir atvikum. Snjóhreinsun takmarkast við að gera þessar götur akfærar. Við snjóhreinsun í húsagötum er líklegt að við innkeyrslur myndist snjóruðningar. Þótt reynt sé að haga mokstri þannig að það gerist ekki eru aðstæður mjög misjafnar og stundum er það óhjákvæmilegt. Ekki hefur verið lögð áhersla á að moka ruðningana nema í sérstökum tilfellum. Það fellur því í hlut íbúanna sjálfra að hreinsa burt snjó úr innkeyrslum.

Stígar- og gangstéttar - snjóhreinsun og hálkueyðing

Á stíga og gangstéttar fara sérútbúnar dráttarvélar og til hálkueyðingar er notaður sandur og salt. Stofnstígar, þ.e. breiðir göngu- og hjólastígar sem tengja saman bæjarhluta hafa forgang í hreinsun og síðan er farið í megingönguleiðir að strætóskýlum og skólum. Miðað er við að þær séu orðnar greiðfærar fyrir kl. 8:00 virka daga. Stundum er farið út um helgar ef mikið hefur snjóað til að reyna létta á göngustígum. Þröngir göngustígar í eldri hverfum (1-1.2 m) eru öllu jöfnu ekki mokaðir enda erfitt að fara þar um með vélar vegna þrengsla. Reynt er þó að bregðast við ábendingum eins og kostur er.

Ábendingar vegna snjómoksturs og hálkuvarna

Hægt er að koma ábendingum vegna snjómoksturs og hálkuvarna til þjónustuvers Garðabæjar á gardabaer@gardabaer.is eða í síma 525-8500.