Taktu þátt í vali á íþróttamönnum Garðabæjar 2015
Fjórir karlar og fjórar konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2015.
Fjórir karlar og fjórar konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2015. Einn karlmaður og ein kona verða valin annars vegar sem íþróttakarl og hins vegar íþróttakona Garðabæjar 2015.
Vefkosning fer fram á vef Garðabæjar og stendur til og með 6. janúar.
Upplýsingar um íþróttamennina sem eru tilnefndir og afrek þeirra.
Vefkosning - íþróttamenn Garðabæjar 2015
Tilkynnt verður um kjör íþróttamanna Garðabæjar í íþróttamiðstöðinni Ásgarði 10. janúar 2016 kl. 13. Þar verða einnig veittar fleiri viðurkenningar vegna íþróttastarfs.
Allir eru velkomnir á hátíðina.