Standa sig vel í PISA
Nemendur í Garðabæ koma vel út í PISA könnuninni sem framkvæmd var á árinu 2015. Þegar horft er til átta stærstu sveitarfélaganna á landinu skila nemendur í Garðabæ hæstu meðaleinkunnum í öllum þáttunum þremur sem mældir eru í könnuninni, þ.e. lesskilningi, læsi á stærðfræði og læsi á náttúruvísindi.
Átta stærstu sveitarfélögin á landinu eru: Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Akureyri, Reykjanesbær og Árborg.
Í samantekt frá Menntamálastofnun sést að nemendur í Garðabæ standa sig best af nemendum í þessum átta sveitarfélögum. Í öllum tilfellum er meðaleinkunn í Garðabæ líka hærri en meðaleinkunn íslenskra nemenda í heild.
Meðaleinkunn Garðbæinga í lesskilningi er 497, en 489 hjá nemendum í Kópavogi sem koma þar á eftir. Í stærðfræði er meðaleinkunn í Garðabæ 516, nokkuð hærri en hjá nemendum í Mosfellsbæ sem koma næstir með meðaleinkunnina 500. Bæði í lesskilningi og í stærðfræði er meðaleinkunn í Garðabæ hærri en meðaleinkunn OECD landanna. Meðaleinkunn nemenda í Garðabæ í læsi á náttúruvísindi er 487 en næstir koma Mosfellingar með meðaleinkunnina 479.
Einkunnir nemenda í Garðabæ eru ívið lægri en þær voru í könnuninni árið 2012 í lesskilningi og læsi á náttúruvísindi. Mest er breytingin í læsi á náttúruvísindum en hún nemur 28 stigum. Ekki mælist marktæk breyting á meðaleinkunn í stærðfræðilæsi.
Lesskilningur |
|
Garðabær |
497 |
Ísland |
482 |
Meðaltal OECD |
493 |
|
|
Læsi á stærðfræði |
|
Garðabær |
516 |
Ísland |
488 |
Meðaltal OECD |
490 |
|
|
Læsi á náttúruvísindi |
|
Garðabær |
487 |
Ísland |
473 |
Meðaltal OECD |
493 |