11. des. 2015

Ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu á Garðatorgi

Ljósin voru tendruð á jólatrénu fyrir utan ráðhús Garðabæjar á Garðatorgi laugardaginn 5. desember Jólatréð kemur frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi
  • Séð yfir Garðabæ

Laugardaginn 5. desember sl. voru ljósin tendruð á jólatrénu fyrir utan ráðhús Garðabæjar á Garðatorgi.  Jólatréð kemur frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og í ár er þetta í 46. sinn sem Garðbæingar njóta þessarar vinasendingar þaðan. 

Vel mætt þrátt fyrir vindasamt veður 

Það var vindasamt þennan laugardag en á meðan á athöfninni stóð lægði og gestir voru vel klæddir eftir veðri.  Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar hóf dagskrána eins og fyrri ár og spiluðu falleg jólalög til að koma öllum í gott jólaskap. Því næst bauð formaður Norræna félagsins í Garðabæ, Hilmar Ingólfsson, gesti velkomna og Marit Lillealtern, sendiráðsritari í sendiráði Noregs á Íslandi, afhenti tréð formlega og Gunnar Valur Gíslason, varaforseti bæjarstjórnar, veitti því viðtöku. Tveir nemendur úr Hofsstaðaskóla aðstoðuðu við að tendra ljósin og svo stigu nemendur úr Hofsstaðaskóla á svið og sungu vel valin jólalög fyrir áhorfendur sem voru á öllum aldri.  Gestir glöddust svo þegar tveir jólasveinar mættu fyrr til byggða og kíktu við á Garðatorginu þar sem þeir stigu á svið og sungu með góðri aðstoð barnanna úr Hofsstaðaskóla. Að lokinni athöfn utandyra gátu gestir farið inn í göngugötuna á Garðatorgi og hlýjað sér og verslunin Víðir bauð upp á mandarínur, piparkökur og annað góðgæti með aðstoð Norræna félagsins í Garðabæ. 

Fyrr um daginn var einnig vel mætt á árlegt jólaleikrit í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og í ár var það Möguleikhúsið sem sýndi verkið ,,Hvar er Stekkjarstaur?" Sjá frétt á vef Bókasafnins.

Hönnunarsafn Íslands var með ókeypis aðgang í tilefni dagsins og í glugga á anddyri safnsins er nú hægt að skoða jóladagatal safnsins þar sem nýr hlutur úr safneign birtist á hverjum degi. 

Fleiri myndir frá jóladagskránni á Garðatorgi eru á fésbókarsíðu Garðabæjar.

Jólatréð komið upp aftur

Vinabæjarjólatréð var tekið niður mánudaginn 7. desember sl. til að koma í veg fyrir að það myndi brotna í óveðrinu sem gekk yfir landið síðar það kvöld.  Sú ráðstöfun gekk vel og tréð er nú aftur komið upp á sinn stað fyrir framan ráðhús Garðabæjar.