Dagur íslenskrar náttúru í Garðaskóla
Nemendur í 8. bekk í Garðaskóla hófu vinnu við plöntuverkefni á degi íslenskrar náttúru miðvikudaginn 16. september sl.
Nemendur í 8. bekk í Garðaskóla hófu vinnu við plöntuverkefni á degi íslenskrar náttúru miðvikudaginn 16. september sl. Verkefnið er hefðbundinn liður í byrjun vetrarstarfsins í náttúrufræði í Garðaskóla.
Í tengslum við verkefnið fara nemendur í vettvangsferðir um skólalóðina, að Hraunsholtslæk, í Vigdísarlund og út í hraun til þess að skoða plönturnar sem vaxa þar.
Flestir hópar hafa verið afar heppnir með veður í vettvangsferðinni og hafa því notið þess enn frekar að fara út í nærumhverfi skólans til þess að kynna sér íslenskan gróður.