9. sep. 2015

Fjör á opnunarhátíð Klakans

Félagsmiðstöðin Klakinn sem er staðsett í Sjálandsskóla hélt opnunarhátíð 8. september þar sem tæplega 80 unglingar komu saman og fögnuðu upphafi starfsins.
  • Séð yfir Garðabæ

Félagsmiðstöðin Klakinn sem er staðsett í Sjálandsskóla hélt opnunarhátíð 8. september þar sem tæplega 80 unglingar komu saman og fögnuðu upphafi starfsins.

Mikið var um fögnuð og var áberandi að unglingarnir voru glaðir að koma saman eftir sumarfrí. Klakinn bauð upp á pizzur, gos, músik og "bungie run".

Allir unglingar í Garðabæ eru velkomnir í Klakann. Upplýsingar um starfsemina eru á vef Sjálandsskóla og einnig má benda á facebook-síðu Klakans

Fleiri myndir frá opnunarhátíð Klakans eru á vef Sjálandsskóla.