Röskun á umferð við Álftanesveg
Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að næstu tvær vikur verður unnið við breikkun og lagfæringar á Álftanesvegi um Engidal milli Hafnarfjarðarvegar og Prýðihverfis. Meðan á þessari framkvæmd stendur má búast við nokkurri röskun á umferð um svæðið.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem þetta veldur og eru hvattir til að fylgja þeim merkingum og leiðbeiningum sem uppi eru hverju sinni.