9. júl. 2015

Opið hús í Króki á Garðaholti í sumar

Bærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar út ágúst mánuð frá kl. 13-17. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923.
  • Séð yfir Garðabæ

Bærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar út ágúst mánuð frá kl. 13-17.  Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923.  Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. Í Króki er einnig herbergi sem hefur verið nýtt sem tímabundin vinnuaðstaða fyrir listamenn yfir vetrarmánuðina.

Krókur er staðsettur við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar, ská á móti samkomuhúsinu á Garðaholti.  Bílastæði eru við samkomuhúsið en einnig er tilvalið að fara í göngu um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni.  Aðgangur að Króki er ókeypis.

Sjá nánari upplýsingar um Krók hér.