Söguganga um Garðaholt
Síðari söguganga Bókasafns Garðabæjar í vor fór fram laugardaginn 9. maí. Gengið var um Garðaholt og Garðahverfi og bustabærinn Krókur heimsóttur. Leiðsögumaður var Rúna K. Tetzschner íslenskufræðingur og myndlistarmaður.
Síðari söguganga Bókasafns Garðabæjar í vor fór fram laugardaginn 9. maí. Gengið var um Garðaholt og Garðahverfi og bustabærinn Krókur heimsóttur. Leiðsögumaður var Rúna K. Tetzschner íslenskufræðingur og myndlistarmaður. Gangan hófst við samkomuhúsið Garðaholt og var gengið fyrst upp í Garðaholt, þaðan meðfram Garðatúngarði niður að Hausastaðaskóla, um fjöruna og upp að Garðalind, hinu forna vatnsbóli Garðahverfis. Stoppað var við ýmsar minjar á leiðinni. Að lokum kom gönguhópurinn við í burstabænum Króki þar sem þátttakendur fengu hressingu. Ágætis mæting var í gönguna og gönguveðrið var hið besta.
Sjá einnig frétt og myndir á vef bókasafnsins.