Íbúafundur umhverfisnefndar
Nærumhverfið skiptir okkur máli var heiti íbúafundar sem umhverfisnefnd stóð fyrir 12. maí sl. í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Formaður umhverfisnefndar Jóna Sæmundsdóttir setti fundinn með stuttu ávarpi um umhverfismál í Garðabæ og tilnefndi Gunnar Einarsson bæjarstjóra sem fundarstjóra.
Á fundinum voru flutt örerindi um umhverfismál þar sem fjallað var um vorhreinsun, safnhaugagerð, slátt og hirðingu á bæjarlandinu, gróður á lóðum, trjáklippingar, gatna- og stígamál, umhverfismál og reynslu götustjóra af þátttöku í hreinsunarátaki bæjarins. Erindin voru flutt af Erlu Bil Bjarnardóttur umhverfisstjóra Garðabæjar, Smára Guðmundssyni, garðyrkjustjóra Garðabæjar, Eysteini Haraldssyni bæjarverkfræðingi Garðabæjar og Sófusi Gústavssyni, íbúa við Smáraflöt.
Um 60 manns mættu á fundinn og að loknum erindum var gestum boðið upp á súpu og tóku þátt í umræðum á borðum. Spurningarnar sem leitast var svara við voru um hvað væri brýnast í umhverfismálum, hvað við gerum vel í umhverfismálum og hvað við getum gert betur. Góðar umræður voru við borðin og almenn ánægja með hvernig tókst til með íbúafundinn. Ábendingar íbúa sem komu fram á fundinum verða birtar á vefsíðu bæjarins og unnið með þær áfram í umhverfisnefnd Garðabæjar.