15. maí 2015

Leiðsagnir í Hönnunarsafninu á íslenska safnadeginum

Í tilefni af íslenska safnadeginum sunnudaginn 17. maí, verður boðið upp á leiðsagnir þar sem skyggnst verður bak við tjöldin í Hönnunarsafni Íslands við Garðatorg. Gestir fá tækifæri til að ganga um mismunandi vinnurými safnsins og heyra um það fjölbreytta starf sem þar á sér stað.
  • Séð yfir Garðabæ

Í safneign Hönnunarsafnsins eru rúmlega 1200 gripir og mikill meirihluti þeirra eru húsgögn. Mikið starf fer fram í tengslum við safneign safnsins jafnvel þó ekki sé verið að setja upp sýningar.  Í leiðsögn um varðveislurýmin gefst einstakt tækifæri til að skyggnast á bak við tjöldin og kynnast gripum og starfi eina safns landsins sem safnar einvörðungu hönnun og nytjalist.

Takmarka þarf fjölda gesta í hverri leiðsögn og er miðað við 10 gesti í hóp. Boðið verður upp á fjórar leiðsagnir sem taka hálftíma hver : Kl. 13:30; 14:30; 15:30 og 16:30.
Ókeypis aðgangur er á safnið þennan dag.

Sjá einnig upplýsingar á vef safnsins, www.honnunarsafn.is. Auk þess er Hönnunarsafnið með fésbókarsíðu þar sem má finna ýmsan fróðleik um það sem er í gangi hverju sinni hjá safninu.