Opið hús á Safnanótt
Hin árlega Safnanótt var haldin föstudagskvöldið 6. febrúar sl. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík og þetta var í sjötta sinn sem söfn í Garðabæ tóku þátt í hátíðinni. Hönnunarsafn Íslands, burstabærinn Krókur á Garðaholti og Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi og á Álftanesi voru með opið hús frá kl. 19 til miðnættis á Safnanótt.
Gleymt og geymt - öðruvísi sýning í Bókasafninu
Í Bókasafni Garðabæjar var boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Garðatorgi og á Álftanesi. Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson fluttu hugljúf sönglög eftir Jóhann Helgason við ljóð Þórarins Eldjárns við góðar undirtektir gesta. Þau Ragnheiður og Guðmundur hófu dagskrána á Garðatorgi en endurtóku einnig söngdagskrána á Álftanesi síðar um kvöldið. Rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson fræddi gesti safnanna um bókina Dægradvöl eftir Benedikt Gröndal og einnig gátu gestir á Garðatorginu hlýtt á kynningu Sigurlínar Sveinbjarnardóttur um bók Vibeke Nörgaard Nielsen um danska listmálarann Johannes Larsen. Bryndís Björgvinsdóttir rithöfundur flutti hugleiðingu við opnun nýrrar sýningar í safninu á Garðatorgi. Sýningin nefnist ,,Gleymt og geymt" og þar eru sýndir ýmsir munir sem hafa gleymst í bókum safnsins gegnum árin. Sýningin stendur áfram í safninu á Garðatorgi.
Un peu plus - ný sýning opnuð í Hönnunarsafninu
Í Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi var sýningin ,,Un peu plus" opnuð á Safnanótt. Viðfangsefni sýningarinnar eru tískuteikningar Helgu Björnsson, sem var yfirhönnuður hátískulínu tískufyrirtækisins Lois Féraud í Frakklandi. Boðið var upp á leiðsagnir um nýju sýninguna en auk þess voru einnig leiðsagnir um hina vinsælu sýningu ,,Ertu tilbúin frú forseti?". Síðastliðinn sunnudag var einnig boðið upp á leiðsögn um forsetasýninguna í fylgd frú Vigdísar Finnbogadóttur og fjölmargir lögðu leið sína í safnið um helgina.