Söguganga og afhjúpun söguskiltis á Skansinum
Forseti Íslands og bæjarstjórinn í Garðabæ afhjúpa söguskilti á Skansinum á Bessastaðanesi laugardaginn 12. nóvember. Boðið er til sögugöngu af því tilefni, lagt verður af stað kl. 11:30 frá Eyri, nyrst á Álftanesi og gengið að Skansinum. Við Skansinn er kenndur hinn eini sanni Óli Skans en hvert mannsbarn þekkir vísuna um hann.
Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur, verður leiðsögumaður í sögugöngunni og segir frá sögu Skansins. Einnig verður sagt frá endurheimt votlendis skammt frá Skansinum í leiðsögn Erlu Biljar Bjarnardóttur umhverfisstjóra Garðabæjar.
Skansinn á Bessastaðanesi var reistur árið 1668 í kjölfar Tyrkjaránsins sem markaði djúp spor í sögu þjóðarinnar. Virkið á Bessastöðum er áþreifanlegar minjar um þennan sögulega atburð. Þá er bærinn sjálfur merkilegur fyrir þær sakir að þar bjó Óli Skans í kotbýli á 19. öld. Skansinn var friðlýstur af Þjóðminjaverði árið 1938.
Allir eru velkomnir í sögugönguna. Meðfylgjandi mynd með frétt sýnir mætingarstaðinn á Eyri og þaðan er létt ganga að Skansinum (um 850 metrar).
Sögugangan á fésbókarsíðu Garðabæjar.