18. des. 2014

Garðabær keppir í annari umferð Útsvars

Lið Garðabæjar keppir í annari umferð (16 liða úrslit) Útsvars gegn Akureyri í sjónvarpinu föstudagskvöldið 19. desember kl. 20:15. Í liði Garðabæjar eru þau Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen.
  • Séð yfir Garðabæ

Lið Garðabæjar keppir í annari umferð (16 liða úrslit) Útsvars gegn Akureyri í sjónvarpinu föstudagskvöldið 19. desember kl. 20:15.  Spurningaþátturinn Útsvar er nú áttunda veturinn á föstudagskvöldum í sjónvarpinu og eins og síðastliðin ár eru það sveitarfélög alls staðar af landinu sem etja kappi í sjónvarpssal RÚV.  Í liði Garðabæjar eru þau Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen.

Garðbæingar eru velkomnir að fylgjast með viðureigninni í beinni útsendingu úr sjónvarpssal í Efstaleiti og mæting fyrir áhorfendur er um hálftíma fyrir útsendingu.

Áfram Garðabær!

Sjá nánar hér á vef RÚV