Sundlaugin í Ásgarði opnuð á ný
Ásgarðslaug í Garðabæ opnaði á ný sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl sl. Það var fjölmennt við opnunina og margir sem biðu spenntir eftir að fá að stinga sér til sunds á ný. ,,Fósturvísarnir" félagar í karlakórnum Fóstbræðrum fluttu nokkur lög fyrir viðstadda áður en klippt var á borðan ofan í laugina og tóku einnig lagið á sundlaugarbakkanum. Ungir sundiðkendur úr Stjörnunni syntu fyrstu ferðirnar í nýju lauginni
-
Ásgarðslaug opin á ný eftir endurbætur!
-
Opnun Ásgarðslaugar
-
Opnun Ásgarðslaugar
-
Ásgarðslaug opin eftir endurbætur!
-
Opnun Ásgarðslaugar
-
Opnun Ásgarðslaugar
-
Opnun Ásgarðslaugar
Ásgarðslaug í Garðabæ opnaði á ný sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 19. apríl sl. Við opnunina var skrifað undir samstarfssamning við Embætti landlæknis um að Garðabær verði ,,Heilsueflandi samfélag“. Sjá nánar í frétt hér á vefnum.
Það var fjölmennt við opnunina og margir sem biðu spenntir eftir að fá að stinga sér til sunds á ný. ,,Fósturvísarnir" félagar í karlakórnum Fóstbræðrum fluttu nokkur lög fyrir viðstadda áður en klippt var á borðan ofan í laugina og tóku einnig lagið á sundlaugarbakkanum. Ungir sundiðkendur úr Stjörnunni syntu fyrstu ferðirnar í nýju lauginni og boðið var upp á hressingu við sundlaugarbakkann.
Fleiri myndir frá opnuninni eru hér á fésbókarsíðu Garðabæjar.
Ókeypis aðgangur 19.-22. apríl
Við opnun Ásgarðlaugar verður boðið upp á tónlistaratriði og ungir sundiðkendur Stjörnunnar synda fyrstu ferðirnar í nýju lauginni. Dagana 19.-22. apríl nk. er ókeypis aðgangur fyrir alla í Ásgarðslaug í tilefni af enduropnun laugarinnar. Sundlaugin í Ásgarði er opin til kl. 21 föstudaginn 20. apríl og um helgina er opið frá kl. 08-18.
Í sumar verður í tilraunaskyni haft opið í Ásgarðslaug til kl. 22 á kvöldin og börn yngri en 18 ára fá ókeypis aðgang í sundlaugar bæjarins.
Miklar endurbætur í Ásgarði
Endurbætur á sundlauginni í Ásgarði og rýmum innandyra er ein stærsta framkvæmdin sem hefur verið í gangi hjá Garðabæ á þessu og síðasta ári.
Öll yfirborðsefni á baðklefum og sundlaug hafa verið endurnýjuð. Nýir heitir pottar hafa verið byggðir með nuddstútum undir yfirborðinu, nýr kaldavatnspottur var byggður sem og vað- og setlaug með barnarennibraut. Gufubaðið hefur verið endurnýjað og nýjar útisturtur settar upp fyrir utan. Allar sturtur hafa verið endurnýjaðar. Útiklefar hafa verið endurnýjaðir og í inniklefum karla og kvenna eru nýjir klefar fyrir fatlað fólk. Von er á nýrri lyftu ofan í sundlauginni fyrir fatlað fólk í byrjun maí sem bætir verulega aðgengi fyrir fatlaða að lauginni.
Ný girðing kemur utan um allt sundlaugarsvæðið og í nýju vaktherbergi verður fullkomið eftirlits- og myndavélakerfi sem eykur mjög öryggi sundlaugargesta.
Innandyra var gólf í danssal lagað og rými opnað við hlið salarins þar sem þrekaðstaða almennings flyst upp úr kjallara. Kjallari var jafnframt stækkaður til að koma hreinsibúnaði fyrir.