31. okt. 2014

Sýning í samstarfi við gullsmiði

Prýði er heitið á nýrri sýningu sem opnaði í Hönnunarsafni Íslands um miðjan október. Sýningin er unnin í samstarfi við Félag íslenskra gullsmiða í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Á sýningunni eru gripir eftir 40 gullsmiði sem voru gefnar frjálsar hendur að smíða fyrir sýninguna eða velja úr eigin safni.
  • Séð yfir Garðabæ

Prýði er heitið á nýrri sýningu sem opnaði í Hönnunarsafni Íslands um miðjan október. Sýningin er unnin í samstarfi við Félag íslenskra gullsmiða í tilefni af 90 ára afmæli félagsins.   Á sýningunni eru gripir eftir 40 gullsmiði sem voru gefnar frjálsar hendur að smíða fyrir sýninguna eða velja úr eigin safni. Gullsmiðirnir eru á ólíkum aldri, þeir sem unnið hafa við fagið í áratugi og byggt upp atvinnurekstur og tekið til sín lærlinga, svo og yngra fólk sem sýnir við hlið meistara sinna og hefur á síðustu árum skapað sér nafn og sérstöðu með þátttöku í fjölda sýninga og rekstri vinnustofa eða verslana. Nýútskrifaðir gullsmiðir eru einnig meðal sýnenda og þátttaka þeirra er mikilvægur hluti þess sem sýningunni er ætlað að gera, að varpa ljósi á þá breidd sem ríkir í íslenskri gullsmíði í dag. 

Eftirtaldir gullsmiðir eiga verk á sýningunni: Anna María Sveinbjörnsdóttir, Arna Arnardóttir, Ása Gunnlaugsdóttir, Ásgeir Reynisson (Gull- og silfursmiðjan Erna), Ásmundur Kristjánsson, Ástþór Helgason, Berglind Snorradóttir, Dóra Jónsdóttir, Dýrfinna Torfadóttir, Edda Bergsteinsdóttir, Eggert Hannah, Erling Jóhannesson, Friðrik Freyr Flosason, Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Halldór Kristinsson, Hansína Jensdóttir, Haukur Valdimarsson, Helena Rós Róbertsdóttir, Helga Ósk Einarsdóttir, Inga R. Bachmann, Jóhannes Arnljóts Ottósson, Jón Snorri Sigurðsson, Júlía Þrastardóttir, Kjartan Örn Kjartansson, Lilja Unnarsdóttir, Lovísa Halldórsdóttir, Olga Perla Nielsen, Orri Finn, Ófeigur Björnsson, Páll Sveinsson, Rúnar frá Keflavík, Sif Ægisdóttir, Sigmar Ó. Maríusson, Sigrún Sigurjónsdóttir, Sigurður G. Steinþórsson, Sólborg Sumarrós Sigurðardóttir, Stefán Bogi Stefánsson, Unnur Eir Björnsdóttir og Þorbergur Halldórsson.

Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 og er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Á vefsíðu safnsins, www.honnunarsafn.is,  er hægt að sjá nánari upplýsingar um sýninguna.  Auk þess heldur safnið úti skemmtilegri fésbókarsíðu.