7. feb. 2018

Bein útsending af íbúafundi í Flataskóla hefst kl. 17:30

Bein útsending af íbúafundi í Flataskóla hefst kl. 17:30 á fésbókarsíðu Garðabæjar

  • Íbúafundur
    Íbúafundur

Bein útsending af íbúafundi í Flataskóla hefst kl. 17:30 á fésbókarsíðu Garðabæjar

Bjóðum í samtal 

Hverfafundir - íbúafundir með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar
Miðvikudaga í janúar og febrúar kl. 17:30 – 19:00

Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar

Fjórði fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 7. febrúar kl. 17:30 - 19 í Flataskóla við Vífilsstaðaveg.

Íbúar Hæðahverfis, Flatahverfis, Byggða, Búða, Bæjargils, Fitja, Hóla,  Garðatorgs, Grunda, Móa,  Lunda,  Mýra og Túna eru sérstaklega velkomnir.

Á dagskrá fundanna verður m.a.

• Inngangur frá bæjarstjóra
• Nágrannavarsla og þjónusta
• Framkvæmdir í nærumhverfi og skipulagsmál
• Fræðslumál og fjölskyldumál
• Um hvað vilt þú tala? Innsendar fyrirspurnir bæjarbúa og fyrirspurnir úr sal – umræður

Vonumst til að sjá sem flesta íbúa taka samtalið við okkur á fundunum.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri

• Boðið verður upp á súpu og brauð.
• Íbúum gefst kostur á að senda inn fyrirspurnir fyrir fundina á vef Garðabæjar, gardabaer.is.
• Allir fundir verða sendir út beint á vef Garðabæjar. 

Fyrirspurnir og umræðuefni - sendu inn ábendingu!


Íbúar eru hvattir til að senda inn fyrirspurnir fyrir fundina 
hér á vef Garðabæjar.  Einnig er hægt að senda inn óskir um umræðuefni á fundunum hér. 

Dagsetning

Hverfi

Fundarstaður

17. janúar 
kl. 17:30-19

Urriðaholt, Vífilsstaðir og Hnoðraholt

Fundarsalur Toyota, Kauptúni

24. janúar
kl. 17:30-19

Álftanes

Hátíðarsalur Álftaness, íþróttamiðstöðinni

31. janúar
kl. 17:30-19

Akrahverfi, Arnarnes, Ásar, Sjáland, Garðahraun/Prýði, Hleinar

Sjálandsskóli

7. febrúar
kl. 17:30-19

Hæðahverfi, Flatahverfi, Byggðir, Búðir, Bæjargil, Fitjar, Hólar,  Garðatorg, Grundir, Móar,  Lundir,  Mýrar, Tún

Flataskóli

 

Hverfaskiptingin er leiðbeinandi, allir fundir eru opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.