2. feb. 2018

Góð mæting á íbúafund í Sjálandsskóla

Miðvikudaginn 31. janúar sl.var haldinn íbúafundur í Sjálandsskóla undir yfirskriftinni Bjóðum í samtal. Fundurinn var sá þriðji í röðinni af fjórum íbúafundum í Garðabæ í janúar og febrúar á þessu ári. Góð mæting var á fundinn í Sjálandsskóla og greinilegt að íbúar eru áhugasamir um að fræðast um starfssemi bæjarins og að koma málefnum og spurningum sínum að.

  • Íbúafundur í Sjálandsskóla
    Íbúafundur í Sjálandsskóla

Miðvikudaginn 31. janúar sl.var haldinn íbúafundur í Sjálandsskóla undir yfirskriftinni Bjóðum í samtal. Fundurinn var sá þriðji í röðinni af fjórum íbúafundum í Garðabæ í janúar og febrúar á þessu ári.  Góð mæting var á fundinn í Sjálandsskóla og greinilegt að íbúar eru áhugasamir um að fræðast um starfssemi bæjarins og að koma málefnum og spurningum sínum að.   

Í upphafi fundar voru örkynningar frá bæjarstjóra, sviðsstjórum og þjónustustjóra þar sem farið var yfir helstu málaflokka.  Einnig tók til máls Ingibjörg Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri öldrunar- og heimaþjónustu Garðabæjar og sagði frá þeirri starfssemi.  Aðaláherslan á íbúafundinum var þó að heyra í íbúum um það sem brennur á þeim og leitast við að svara þeirra spurningum.  Margar spurningar snérust að umferðarmálum í Sjálandshverfi, við Álftanesveg og víðar en einnig var rætt um umhverfismál, snjómokstur, málefni aldraðra og fleira. 

Ekki náðist að fara yfir allar spurningar sem voru sendar inn fyrirfram á sjálfum fundinum.  En allar spurningar sem hafa borist fyrir fundina og einnig þær sem hafa verið ræddar á fundunum verða teknar saman í eina heild, lagðar fyrir bæjarráð Garðabæjar og birtar á vef Garðabæjar að lokinni fundarröð.  

Íbúafundur í Flataskóla 7. febrúar kl. 17:30-19

Síðasti fundurinn í fundaröðinni verður haldinn miðvikudaginn 7. febrúar en á þann fund eru íbúar Hæðahverfis, Flatahverfis, Byggða, Búða, Bæjargils, Fitja, Hóla, Garðatorgs, Grunda, Móa, Lunda, Mýra og Túna velkomnir.  

Um hvað vilt þú tala?

Íbúar geta sent inn fyrirspurnir fyrir hvern fund í gegnum sérstakt ábendingaform hér á vef Garðabæjar,  þar er líka hægt að senda inn tillögur að umræðuefnum fyrir fundina.  Allar ábendingar og/eða fyrirspurnir sem berast á fundunum verða skráðar niður og teknar til skoðunar og lagðar fyrir bæjarráð Garðabæjar.  Hver fundur verður sendur út beint á netinu í gegnum ,,facebook-live" á fésbókarsíðu Garðabæjar.