Lið Garðabæjar komst áfram
Lið Garðabæjar stóð sig vel í fyrstu umferð spurningaþáttarins Útsvars og hafði betur gegn Hveragerði föstudagskvöldið 17. október sl. Garðbæingar fengu 57 stig en Hveragerði 47 stig að leikslokum.
Lið Garðabæjar stóð sig vel í fyrstu umferð spurningaþáttarins Útsvars og hafði betur gegn Hveragerði föstudagskvöldið 17. október sl. Garðbæingar fengu 57 stig en Hveragerði 47 stig að leikslokum. Í liði Garðabæjar eru þau Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen. Útsvar er á dagskrá sjónvarpsins á föstudagskvöldum í vetur eins og undanfarin ár. Næsta umferð hefst í desember en ekki er búið að draga um hvaða lið mætast í annarri umferð.
Hér á vef RÚV er hægt að sjá nánari upplýsingar um viðureignir vetrarins í Útsvari.