5. jan. 2018

Leiðakerfisbreytingar og næturakstur hjá Strætó 2018

Sunnudaginn 7. janúar taka í gildi umfangsmiklar breytingar á þjónustustigi Strætó bs. Þjónustutími verður lengdur á leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 15 og 18 til klukkan 01:00 á kvöldin. Sex leiðir verða í næturakstri úr miðbæ Reykjavíkur aðfaranætur laugar- og sunnudaga.

  • Strætó
    Strætó

Sunnudaginn 7. janúar taka í gildi umfangsmiklar breytingar á þjónustustigi Strætó bs.

Helstu breytingar eru:

  • Leið 6 verður stytt og mun aka á 10 mínútna tíðni á annatímum. Sama fyrirkomulag hefur verið á leið 1 í rúmt ár og hefur það reynst mjög vel.
  • Þjónustutími verður lengdur á leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 15 og 18 til klukkan 01:00 á kvöldin.
  • Sex leiðir verða í næturakstri úr miðbæ Reykjavíkur aðfaranætur laugar- og sunnudaga. Leiðirnar verða eknar á um klukkutíma fresti frá klukkan 01:00 til 04:30. Leið 101 ekur frá miðbæ Reykjavíkur með viðkomu í Garðabæ. 
  •  Sumarið 2018 verður engin sérstök þjónustuskerðing yfir sumartímann eins og tíðkast hefur síðastliðin ár.

Nánar er fjallað um allar leiðakerfisbreytingar og næturakstur hér (pdf-skjal) 

Sjá einnig frétt á vef Strætó bs.

 Gjaldskrárbreytingar hjá Strætó

Gjaldskrárbreytingar hjá Strætó tóku gildi 3. janúar sl.  

  •  Gjaldskrá hækkar að meðaltali um 4,9%.
  • Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu er núna 460 kr. eftir breytingu.
  • Afsláttarfargjöld fyrir börn, aldraða og öryrkja er núna 220 kr.

Sjá einnig upplýsingar um gjaldskrárbreytingar hér á vef Strætó.