27. des. 2017

Taktu þátt í vali á íþróttamönnum Garðabæjar 2017

Fimm karlar og sex konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2017. Einn karlmaður og ein kona verða valin, annars vegar sem íþróttakarl og hins vegar íþróttakona Garðabæjar 2017. Opin vefkosning fer fram á vef Garðabæjar frá 28. desember nk. til 2. janúar 2018.

  • Íþróttamenn Garðabæjar 2016
    Íþróttamenn Garðabæjar 2016

Fimm karlar og sex konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2017. Einn karlmaður og ein kona verða valin, annars vegar sem íþróttakarl og hins vegar íþróttakona Garðabæjar 2017. 

Opin vefkosning fer fram á vef Garðabæjar frá 28. desember nk. til 2. janúar 2018.
ÍTG mun síðan velja milli þeirra sem tilnefndir eru og styðjast við niðurstöðu vefkosningarinnar við það val.

Upplýsingar um íþróttamennina sem eru tilnefndir og afrek þeirra

Vefkosning - íþróttamenn Garðabæjar 2017 (vefkosningin var til og með 2. janúar)

Íþróttahátíð Garðabæjar 7. janúar nk.

Kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar verður lýst við hátíðlega athöfn í Ásgarði sunnudaginn 7.janúar kl. 13:00. Þar verða einnig afhentar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á íþróttasviðinu, þátttöku með landsliðum og árangur á erlendum vettvangi. Þá verður einnig veitt viðurkenning fyrir æskulýðsstörf og þjálfari ársins valinn.

Allir eru velkomnir á hátíðina.

Meðfylgjandi mynd með frétt er af íþróttamönnum Garðabæjar 2016.