8. des. 2017

Jólastemning á Garðatorgi

Laugardaginn 2. desember sl. voru ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð kemur frá vinabænum Asker í Noregi og þetta var í 48. sinn sem Garðbæingar fengu þessa vinagjöf frá Asker. Veðrið var eins og best er á kosið á þessum tíma árs og fjölmenni mætti á torgið.
  • Séð yfir Garðabæ

Laugardaginn 2. desember sl. voru ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð kemur frá vinabænum Asker í Noregi og þetta var í 48. sinn sem Garðbæingar fengu þessa vinagjöf frá Asker.  Veðrið var eins og best er á kosið á þessum tíma árs og fjölmenni mætti á torgið.  Athöfnin hófst með fallegum tónum blásarasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar og því næst steig á svið barnakór leikskólans Hæðarbóls og flutti nokkur jólalög fyrir gesti.  Hilmar Ingólfsson, formaður Norræna félagsins í Garðabæ bauð gesti velkomna og Silje Beite Løken menningar- og upplýsingafulltrúi sendiráðs Noregs á Íslandi afhenti jólatréð fyrir hönd Asker.  Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, veiti trénu viðtöku og fékk svo til liðs við sig nemendur úr Sjálandsskóla til að tendra ljósin á jólatrénu.  Skólakór Sjálandsskóla söng nokkur vel valin jólalög og ekki leið á löngu þar til jólasveinar komu upp á svið með þeim og skemmtu gestum á öllum aldri.  Norræna félagið í Garðabæ bauð svo upp á góðgæti að lokinni skemmtun í samstarfi við verslunina Víði. 


Fjölbreytt dagskrá víðar á torginu

Fyrr um daginn var einnig margt um að vera í miðbæ Garðabæjar.  Í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi var boðið upp á leiksýninguna ,,Ævintýrið um Augastein" og í Hönnunarsafni Íslands var ókeypis aðgangur í tilefni dagsins og smástundamarkaður leirlistahönnuðar.  Listamenn úr Grósku voru með jólamarkað í salnum sínum og ýmsir listamenn opnuðu vinnustofur sínar á Garðatorgi.  Auk þess gátu gestir byrjað jólaverslunina á torginu.