Ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi 2. desember
Laugardaginn 2. desember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 48. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. Athöfnin á laugardag hefst kl. 16 á Garðatorgi við ráðhús Garðabæjar
Barnaleikrit í Bókasafninu og ókeypis aðgangur í Hönnunarsafn Íslands
Ýmislegt verður einnig um að vera fyrr um daginn í miðbæ Garðabæjar. Að venju er leiksýning í Bókasafni Garðabæjar, sem að þessu sinni hefst kl. 14:30 þegar leikhópurinn á Senunni sýnir ,,Ævintýrið um Augastein“ á efri hæð safnsins að Garðatorgi 7. Laugardaginn 2. desember verður einnig ókeypis aðgangur í Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi og safnið er opið frá kl. 12-17. Í safninu standa yfir sýningarnar ,,Geymilegir hlutir“ og ,,Íslensk plötuumslög“. Í Hönnunarsafninu verður einnig ,,pop-up" eða smástundamarkaður Bjarna Sigurðssonar leirlistahönnuðar og í hádeginu verður boðið upp á súpu í samstarfi við Kjöt og fisk í safninu.Verslun á Garðatorgi og opnar vinnustofur og popup – jólalistamarkaður Grósku
Á Garðatorgi er hægt að byrja jólaverslunina í verslunum á torginu. Listamenn í Grósku ætla að skella upp jólalistamarkaði á laugardeginum frá kl. 12-18 í Gróskusalnum á 2. Hæð á Garðatorgi 1. Einnig verða opnar vinnustofur listamanna á sömu hæð þar sem verður líka hægt að finna stór og smá verk til að gleðja hvern sem er.Allir eru velkomnir á Garðatorgið til að taka þátt í jóladagskránni. Sjá nánari upplýsingar hér í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar.