Garðabær mætir Hveragerði í Útsvari
Garðabær tekur þátt í spurningaþættinum Útsvari í ríkissjónvarpinu föstudagskvöldið 17. október kl. 20. Í liði Garðabæjar eru Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen.
Garðabær tekur þátt í spurningaþættinum Útsvari í ríkissjónvarpinu föstudagskvöldið 17. október kl. 20. Í liði Garðabæjar eru Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson og Unnur Alma Thorarensen. Garðabær mætir Hveragerði í fyrstu umferð og áhorfendur eru velkomnir að fylgjast með viðureigninni í beinni útsendingu og mæta þá hálftíma fyrir útsendingu í sjónvarpssal í Efstaleiti. Umsjónarmenn þáttarins eru sem fyrr þau Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir.
Áfram Garðabær!
Sjá nánar hér á vef RÚV