24. ágú. 2017

PMTO foreldrafærninámskeið fyrir foreldra 4-12 ára barna

PMTO (Parent Management Training – Oregon aðferð) foreldrafærninámskeið verður haldið í Garðabæ á fimmtudögum kl 16:30 – 19:00 í alls 8 skipti haustið 2017. Námskeiðið hefst þann 21. september og lýkur 10. nóvember
  • Séð yfir Garðabæ

PMTO (Parent Management Training – Oregon aðferð) Foreldrafærninámskeið verður haldið í Garðabæ á fimmtudögum kl 16:30 – 19:00 í alls 8 skipti haustið 2017. Námskeiðið hefst þann 21. september og lýkur 10. nóvember.

Þátttökugjald er kr 12.500 fyrir fjölskyldu. Innifalin eru námskeiðsgögn og veitingar. 
Gert er ráð fyrir að báðir foreldrar komi á námskeiðið. Lágmarksþátttaka þarf að vera (8 fjölskyldur) svo námskeiðið verði haldið. Nánari upplýsingar um staðsetningu námskeiðsins verður auglýst síðar.

Upplýsingar og skráning : 

Skráning fer fram á netfangi Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is í t-pósti þarf að taka fram nafn foreldra/forráðamanna, kennitölur og símanúmer.  Svar um pláss á námskeiði verða send um miðjan september. Umsóknarfrestur er til og með 10. september.  

PMTO námskeið eru fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika. Foreldrar læra aðferðir til að draga úr hegðunarerfiðleikum barns og stuðla að góðri aðlögun þess með því að: 
- Nota skýr fyrirmæli
- Hvetja börn til jákvæðrar hegðunar
- Setja hegðun barna mörk
- Rjúfa vítahring í samskiptum
- Vinna með tilfinningar og samskipti
- Hafa markvisst eftirlit
- Leysa ágreining
- Markviss tengsl heimilis og skóla
Nánari upplýsingar um aðferðina er að finna á vef PMTO.
 
Leiðbeinendur : Hildigunnur Árnadóttir félagsráðgjafi og PMTO meðferðaraðili, Margrét H. Þórarinsdóttir sérkennslufulltrúi og PMTO meðferðaraðili, Sólveig Steinsson þroskaþjálfi og PMTO meðferðaraðili

Fjölskyldusvið Garðabæjar
Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar