13. júl. 2017

Raf- og hljóðbækur í Bókasafni Garðabæjar

Bókasafn Garðabæjar hóf í byrjun sumars útlán á raf- og hljóðbókum í samvinnu við Landskerfi bókasafna. Nú geta viðskiptavinir bókasafnsins nálgast fjölda titla hljóð- og rafbóka á auðveldari hátt en hingað til.
  • Séð yfir Garðabæ

Bókasafn Garðabæjar hóf í byrjun sumars útlán á raf- og hljóðbókum í samvinnu við Landskerfi bókasafna. Nú geta viðskiptavinir bókasafnsins nálgast fjölda titla hljóð- og rafbóka á auðveldari hátt en hingað til. Fyrst um sinn verður safnkostur einkum á ensku en vonast er til þess að íslenskir titlar bætist fljótlega við.

Einn af kostum Rafbókasafnsins er að það er hægt að taka bækur að láni þar sem nettenging er. Ekki þarf að vera nettengdur eftir að bók hefur verið tekin að láni. Það er hægt að hlaða bókum niður á snjalltækið til að geta lesið eða hlustað hvar sem er út útlánstímann.  

Rafbókasafnið er opið fyrir viðskiptavini bókasafnsins

Til að nálgast efni Rafbókasafnsins þarf gilt bókasafnsskírteini hjá Bókasafni Garðabæjar.  Fjölmargir efnisflokkar standa viðskiptavinum til boða, líkt og í hefðbundnu bókasafni. Þar er að finna spennusögur, ævisögur, efni fyrir börn og margt fleira þannig að allir ættu að finna þar eitthvað við sitt hæfi.  
Ítarlegar leiðbeiningar um Rafbókasafnið er að finna hér á vef bókasafnsins. 

Hægt verður að nálgast efnið í flestum tækjum svo sem í vafra í tölvum, spjaldtölvum og snjallsímum. Auk þess er efnið jafnframt aðgengilegt í gegnum sérstakt app, OverDrive sem finna má í App Store og Play Store. 
Þjónustan er veitt í gegnum OverDrive rafbókaveituna og er gjaldfrjáls fyrir viðskiptavini sem eiga bókasafnsskírteini í Bókasafni Garðabæjar. Slóðin að Rafbókasafninu er rafbokasafnid.is
Einnig má finna efni Rafbókasafnsins á leitir.is.
 
Borgarbókasafnið hóf rafbókaútlán í byrjun ársins og í byrjun sumars bættust önnur 13 almenningsbókasöfn við, þar á meðal Bókasafn Garðabæjar. 

Á meðfylgjandi mynd má sjá Gunnar Einarsson bæjarstjóra Garðabæjar og Margréti Sigurgeirsdóttur forstöðumann Bókasafns Garðabæjar taka fyrstu rafbókina að láni í byrjun sumars. Fyrir valinu varð Óður einyrkjans eftir Stefán frá Hvítadal.