21. jún. 2017

Jónsmessugleði Grósku 22. júní kl. 19:30-22:00

Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ, ætlar að halda hina árlegu Jónsmessugleði á göngustígnum við strandlengjuna í Sjálandi fimmtudagskvöldið 22. júní nk. frá kl. 19:30-22. Fjölmargir myndlistarmenn taka þátt í Jónsmessugleði og setja upp myndlistarsýningu sem stendur eingöngu þetta eina kvöld.
  • Séð yfir Garðabæ

Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ, ætlar að halda hina árlegu Jónsmessugleði á göngustígnum við strandlengjuna í Sjálandi  fimmtudagskvöldið 22. júní nk. frá kl. 19:30-22.  Fjölmargir myndlistarmenn taka þátt í Jónsmessugleði og setja upp myndlistarsýningu sem stendur eingöngu þetta eina kvöld.  Jónsmessugleði var haldin fyrst árið 2009 og er nú haldin í níunda sinn.  Jónsmessugleðin hefur vaxið og dafnað og Garðbæingar og aðrir góðir gestir hafa fjölmennt á hátíðina í Sjálandið.

Einkunnarorð Jónsmessugleðinnar eru ,,Gefum, gleðjum og njótum”.  Þar koma saman fjölbreyttir listamenn með ólíka miðla sem gefa vinnu sína þetta kvöld til að gleðja bæjarbúa og annað áhugafólk um list og njóta Jónsmessugleði saman. Í ár er þema Jónsmessugleðinnar ,,EN HVAÐ ÞAÐ VAR SKRÝTIГ.  Í anda þemans vill Gróska hvetja gesti til að mæta í skrýtnum fötum, skreyta sig fjöðrum og lífga þannig upp á hátíðina.
Myndlistin verður eins og áður í aðalhlutverki en eins og fyrri ár geta gestir Jónsmessugleðinnar notið söngs og skemmtunar frá ýmsum listamönnum.  Meðal þeirra sem ljá okkur lið með viðburð eru Leikfélagið Draumar, Jóhann Björn Ævarsson, Rebekka Sif og Daníel Jones, Tónlistarband frá Tónlistarskóla Garðabæjar og Jón Jónsson, tónlistarmaður.

Ungt fólk í skapandi sumarstarfi hjá Garðabæ ætlar að vera sýnilegt og gefa okkur smjörþefinn af þeirra starfi í sumar með tónlist, myndlist, ljósmyndum, video-verki, hljóðinnsetningu, ritlist og öðrum uppákomum.    

Bæjarstarfsmenn og sumarvinnuhópar umhverfisátaks aðstoða með uppsetningu, frágang og ýmsa skipulagningu. 

Viðburður á fésbókarsíðu Grósku.

Sjá einnig  fésbókarsíðu Grósku

Verið velkomin á Jónsmessugleðina!