30. maí 2017

Skráning í skólagarða hafin og fjölskyldugarðar tilbúnir til útleigu

Skráning í skólagarða Garðabæjar í Silfurtúni hófst 1. júní og fjölskyldugarðar í Hæðahverfi eru tilbúnir til útleigu
  • Séð yfir Garðabæ

Skólagarðar Garðabæjar 

Skráning í skólagarða Garðabæjar hófst 1. júní.  Garðarnir eru staðsettir við Silfurtún, fyrir neðan leikskólann Bæjarból. Garðarnir verða opnir frá kl. 8-16 alla virka daga og eru þeir opnir öllum börnum í Garðabæ.  Þátttökugjald er 4.500 kr, innifalið eru plöntur og útsæði auk áburðar og annars sem þarf til að rækta fallegan og gómsætan garð. Starfsmaður verður á staðnum í allt sumar til að aðstoða börnin við garðræktina.

Til að skrá sig þarf bara að mæta, foreldrar og fjölskyldur eru velkomin með börnunum.

Eldri borgurum býðst að leigja garð í görðunum eftir 7. júní.  

Frekari upplýsingar um skólagarðana má finna hér á vefnum.

Fjölskyldugarðar í Hæðahverfi

Nú eru fjölskyldugarðarnir í Hæðahverfi tilbúnir til útleigu. Þar er um að ræða 3 x 5m garða og kostar 4.500 kr að leigja hvern reit. Í görðunum er snyrting og hægt að fá lánuð áhöld og vatn til vökvunar. Búið er að bæta við mold yfir alla garðana þannig að ræktarskilyrði verða betri, einnig er búið að laga akstur slóða sem liggur að görðunum. Molta verður á staðnum sem garðeigendur geta nýtt sér við ræktunina.

Frekari upplýsingar um fjölskyldugarðana má einnig finna hér á vefnum.

Skráning í fjölskyldugarðana fer fram í þjónustuveri Garðabæjar í síma 525-8500 eða með því að senda t-póst á gardabaer@gardabaer.is .