28. apr. 2017

Garðahverfi - tillaga að verndarsvæði í byggð

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 6. apríl sl. að leggja fram tillögu til mennta- og menningarráðherra um að Garðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð. Til að kynna nánar tillöguna verður haldinn íbúafundur miðvikudaginn 3. maí nk.kl.17:00 í samkomuhúsinu á Garðaholti.

  • Frá íbúafundi um deiliskipulag Garðahhverfis
    Frá íbúafundi um deiliskipulag Garðahhverfis

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 6. apríl sl. að leggja fram tillögu til mennta- og menningarráðherra um að Garðahverfi verði gert að verndarsvæði í byggð, sbr. 4. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015.  Tillagan fjallar um verndargildi byggðarinnar í  Garðahverfi sem hefur, þrátt fyrir legu sína á næstum miðju höfuðborgarsvæðisins, haldist óbreytt um langt skeið. Byggðarmynstrið og sýnilegar minjar um eldri byggð og landnýtingu bera þannig vitni um gamla tíma.

Með tillögu um Garðahverfi sem verndarsvæði í byggð verður verndargildi staðarins fest enn frekar í sessi og byggir tillagan á verndarákvæðum deiliskipulags Garðahverfis sem samþykkt var í bæjarstjórn Garðabæjar 21. nóvember 2013.

Vefurinn gardahverfi.is

Á nýjum vef, www.gardahverfi.is, er hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um Garðahverfi og lesa nánar sjálfa tillöguna og greinargerð með henni um að Garðahverfi verði verndarsvæði í byggð.

Íbúafundur miðvikudag 3. maí

Til að kynna nánar tillöguna verður haldinn íbúafundur miðvikudaginn 3. maí nk.kl.17:00 í samkomuhúsinu á Garðaholti. Allir eru velkomnir á fundinn.

Sjá auglýsingu um íbúafundinn.

Hér má sjá auglýsingu um tillöguna.