5. apr. 2017

Sigríður Sigurjónsdóttir er nýr forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands

?Sigríður Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands. Sigríður tekur til starfa í Hönnunarsafninu í lok apríl þar sem hún tekur við af Hörpu Þórsdóttur sem nýverið var skipuð safnstjóri Listasafns Íslands.

  • Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands
    Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands

Sigríður Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands.  Sigríður tekur til starfa í Hönnunarsafninu í lok apríl þar sem hún tekur við af Hörpu Þórsdóttur sem nýverið var skipuð safnstjóri Listasafns Íslands.

Sigríður Sigurjónsdóttir lauk M.A prófi í „Design Studies“ frá ,,Central Saint Martins College of Art and Design“ í London árið 1999.  Hún stofnaði og rak eigið fyrirtæki ,,Spark Design Space“ sem var hönnunargallerí við Klapparstíg som kom á framfæri framúrskarandi íslenskum hönnunarverkefnum. Á tímabilinu 2010 -2016 voru rúmlega 30 verkefni kynnt í rýminu.
Sigríður hefur starfað sem prófessor og fagstjóri í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands á árunum 2004-2012.

Umsækjendur um starfið voru 18 talsins, 16 konur og tveir karlar.

Hönnunarsafn Íslands er rekið af Garðabæ og safnið starfar sem stofnun á vegum bæjarfélagsins skv. samningi við Mennta- og menningarmálaráðuneyti.  Hönnunarsafnið er viðurkennt safn og leiðandi safnastofnun á sviði hönnunar þar sem fara fram rannsóknir, miðlun og varðveisla á hönnun, einkum frá aldamótunum 1900.  Safnið er staðsett á Garðatorgi í Garðabæ og þar er boðið upp á sýningar allt árið og ýmsa viðburði sem miðla þekkingu á hönnun til allra aldurshópa.