16. mar. 2017

Afmælistónleikar blásarasveita Tónlistarskóla Garðabæjar

Í tilefni af 50 ára starfsafmæli blásarasveita Tónlistarskóla Garðabæjar halda þær afmælistónleika í Vídalínskirkju laugardaginn 18. mars kl. 16.

  • Hluti af Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar á æfingu
    Hluti af Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar á æfingu

Skært lúðrar hljóma í 50 ár

Í ár fagna blásarasveitir Tónlistarskóla Garðabæjar 50 ára starfsafmæli sínu og í tilefni þess halda þær afmælistónleika í Vídalínskirkju laugardaginn 18. mars kl. 16.

Mikil hefð hefur verið fyrir starfi blásarasveita allt frá því að Tónlistarskóli Garðabæjar var stofnaður fyrir rúmlega 50 árum og er það ekki síst að þakka fyrsta skólastjóra skólans Guðmundi Norðdal sem lagði áherslu á blásarasveitastarf allt frá upphafi.

Í gegnum tíðina hafa blásarasveitirnar sett svip sinn á bæinn s.s. í skrúðgöngum á sumardaginn fyrsta, sautjánda júní og við önnur hátíðlega tækifæri. Mikill fjöldi barna og ungmenna í Garðabæ hafa tekið þátt í því mikilvæga tónlistaruppeldi sem fólgið er í starfi sveitanna.

Stjórnendur blásarasveita Tónlistarskóla Garðabæjar frá upphafi eru þeir Guðmundur Norðdahl, Björn R. Einarsson,  Edward Frederiksen og Jóhann Björn Ævarsson.  Núverandi stjórnendur blásarasveitanna eru þeir Bragi Vilhjálmsson og Guðmundur Vilhjálmsson.  Í dag eru  starfandi 3 blásarasveitir og 2 stórsveitir við skólann.

Allir eru velkomnir á afmælistónleikana í Vídalínskirkju.