Góð frammistaða skóla í Garðabæ í undankeppni Skólahreysti í TM höllinni í Mýrinni
Á þriðjudag fór fram þriðji riðill í Skólahreysti þar sem lið Sjálandsskóla og Garðaskóla kepptu og stóðu bæði lið sig með sóma.
Í liði Sjálandsskóla voru Emil Grettir Ólafsson, Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir, Vala Ástrós Bjarnadóttir og Orri Geir Andrésson sem öll voru aðalmenn. Varamenn voru Lana Kristín H Dungal og Alexander Arinbjörnsson. Frá Garðaskóla sigraði Helga María Sigurðardóttir keppni í að hanga og Þorbjörn Bragi Jónsson og Aðalheiður G. Kolbeinsdóttir voru í 2. sæti í hraðabrautinni.