3. mar. 2017

Kynningar í grunnskólum vegna innritunar nemenda næsta haust

Framundan eru árlegar kynningar grunnskóla í Garðabæ þar sem forráðamönnum nýrra nemenda er boðið í heimsókn til að kynna sér starfssemi skólanna.
  • Séð yfir Garðabæ

Framundan eru árlegar kynningar grunnskóla í Garðabæ þar sem forráðamönnum nýrra nemenda er boðið í heimsókn til að kynna sér starfssemi skólanna.  

Hver skóli verður með stutta kynningu í húsnæði skólans og síðan verður foreldrum boðið að ganga um skólann undir leiðsögn starfsmanna og/eða nemenda.
Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því.
Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og
margs konar fróðleik um skólastarfið.

Sjá einnig auglýsingu um innritun í grunnskóla.

Kynningar verða sem hér segir:

HOFSSTAÐASKÓLI:
Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2017 verður haldinn í
skólanum miðvikudaginn 15. mars nk. kl. 17.30-18.30.

Nemendur og starfsmenn kynna skólann og segja frá því sem þeim finnst markverðast í starfinu. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið Regnbogann í fylgd nemenda og starfsmanna. Foreldrar annarra nýnema eru velkomnir á kynninguna.
Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu
eftir samkomulagi.
Sími: 590-8100
www.hofsstadaskoli.is

SJÁLANDSSKÓLI:

Kynningarfundir fyrir foreldra væntanlegra 1. og 8. bekkinga verða haldnir í skólanum þriðjudaginn
14. mars.
Kynning fyrir 1. bekk og yngra stig verður haldin kl. 16.30 og fyrir unglingastig kl. 17.30.
Að loknum kynningum verður gestum boðið að skoða skólann, félagsmiðstöðina Klakann (unglingastig) og
tómstundaheimilið Sælukot (yngsta stig) í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu eftir samkomulagi.
Sími: 590-3100.
www.sjalandsskoli.is

ÁLFTANESSKÓLI:
Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2017 miðvikudaginn 22. mars
kl. 17.30.
Kynningarfundur verður á sal skólans. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og Frístund/tómstundaheimilið í fylgd starfsmanna. Foreldrar geta einnig komið í heimsókn og kynnt sér skólann eftir samkomulagi.
Sími: 540-4700
www.alftanesskoli.is

FLATASKÓLI:
Kynningarfundur verður fyrir börn sem hefja nám í 1. bekk næsta haust og fjölskyldur þeirra í sal Flataskóla þriðjudaginn 7. mars kl. 17.00.
Kynning verður á skólastarfinu og skólahúsnæðið verður til sýnis. Þennan sama dag kl. 18.00 er einnig kynning fyrir foreldra og börn sem vilja kynna sér starf skólans fyrir fimm ára gömul börn.
Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tímum geta haft samband við skólann og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
Sími: 513-3500
www.flataskoli.is

GARÐASKÓLI:
Kynningarfundir fyrir nemendur og foreldra verða haldnir mánudaginn 20. mars kl. 17.30 og þriðjudaginn 21. mars kl. 17.30 á sal skólans.
Sagt verður frá helstu þáttum í starfi skólans og gestum síðan boðið að skoða skólann í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
Sími: 590-2500
www.gardaskoli.is

BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR:
Kynningarfundur verður fimmtudaginn 16. mars kl. 17. Þá bjóðum við alla velkomna sem vilja kynna sér skólastarf á 5 ára og 6 ára kjörnum. Barnaskólinn er að Vífilsstaðavegi 123 og fundurinn verður í salnum í gulklædda húsinu sem nefnt er Suðurhús. Kynning verður á skólastarfinu og foreldrum og börnum boðið að skoða húsnæði skólans. Þeir sem ekki komast á nefndum tíma geta haft samband við skólann og bókað sig í
heimsókn.
Sími: 555-7710,
bskgbr.hjalli.is

ALÞJÓÐASKÓLINN (International School of Iceland):
Foreldrar og forráðamenn eru ávallt velkomnir á þeim tíma sem hentar þeim best en nauðsynlegt er að hafa samband á undan til að bóka kynningu og leiðsögn um skólann.
Sími: 590-3106 eða 690-3100
www.internationalschool.is