10. feb. 2017

Dagur tónlistarskólanna 11. febrúar

Fjölbreytt dagskrá verður í Tónlistarskóla Garðabæjar á Degi tónlistarskólanna sem haldinn verður laugardaginn 11. febrúar nk. Þá gefst Garðbæingum færi á að heimsækja skólann og njóta tónlistar af ólíku tagi Dagskráin fer fram á báðum starfsstöðvum skólans, í Kirkjulundi 11 og við Breiðumýri á Álftanesi.
  • Séð yfir Garðabæ

Fjölbreytt dagskrá verður í Tónlistarskóla Garðabæjar á Degi tónlistarskólanna sem haldinn verður  laugardaginn 11. febrúar nk.  Þá gefst Garðbæingum færi á að heimsækja skólann og njóta tónlistar af ólíku tagi. Dagskráin fer fram á báðum starfsstöðvum skólans, í Kirkjulundi 11 og við Breiðumýri á Álftanesi. Fjölmargir hæfileikaríkir nemendur koma fram og skemmta gestum og gangandi, þ.á.m. blásarasveitir skólans, strengjasveitir og stórsveit auk fjölda einleikara. Samtals verða haldnir 11 stuttir tónleikar auk annarra viðburða.

Dagskrá á Álftanesi

Tónleikar í hátíðarsal grunnskólans á Álftanesi kl. 10.30, 11.00 og 11.30.
Foreldra- og velunnarafélag tónlistarnema á Álftanesi stendur fyrir kaffisölu á tónleikunum.

Dagskrá í Kirkjulundi

Tónleikar verða haldnir í báðum sölum skólans kl. 13.00, 13.30, 14.00 og 14.30

Allir bæjarbúar hjartanlega velkomnir.
Það er von kennarara og starfsmanna í Tónlistarskólanum að bæjarbúar noti þetta tækifæri til að heimsækja skólann og kynna sér þá blómlegu starfsemi sem þar fer fram.

Sjá líka vef Tónlistarskólans