27. jan. 2017

Koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar tónstarskólanna

19 nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar tónstarskólanna laugardaginn 28. janúar kl. 16
  • Séð yfir Garðabæ

19 nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar tónstarskólanna sem haldnir verða í Langholtskirkju laugardaginn  28. janúar 16.00. Nemendurnir hafa í janúar tekið þátt í ströngu þriggja vikna námskeiði í hljómsveitarleik.

Hljómsveitarnámskeiðið er samstarfsverkefni fjögurra tónlistarskóla, Tónlistarskóla Garðabæjar, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

Efnisskrá tónleikanna:

Ottorino Respighi – Ancient Airs and Dances / svíta nr. 2

Ludwig van Beethoven – Rómansa í F-dúr op. 50

Pablo de Sarasate – Zigeunerweisen op. 20

Leonard Bernstein – Þættir úr West Side Story

Einleikarar eru tveir ungir fiðlunemendur úr Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, þau Jóhann Örn Thorarensen og Jóhanna Brynja Ruminy.

Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Allir eru hjartanlega velkomnir á tónleikana.

Miðaverð er 3000 kr. fyrir fullorðna og 1500 fyrir börn og eldri borgara