3. jan. 2017

Jólatrén hirt 8. janúar

Hjálparsveit Skáta í Garðabæ sér um að hirða jólatré í öllum hverfum Garðabæjar sunnudaginn 8. janúar.
  • Séð yfir Garðabæ
Hjálparsveit Skáta í Garðabæ sér um að hirða jólatré í öllum hverfum Garðabæjar sunnudaginn 8. janúar.  

Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og ganga þannig frá þeim að þau geti ekki fokið.

Einnig geta íbúar losað sig við jólatré á endurvinnslustöðvum Sorpu bs.