Áramótabrennur í Garðabæ
Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöld. Á Álftanesi verður brennan nærri ströndinni norðan við Gesthús kl. 20:30 og einnig verður brenna við Sjávargrund kl. 21.00
Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöld eins og undanfarin ár:
Á Álftanesi kl. 20:30
Á Álftanesi verður brennan nærri ströndinni norðan við Gesthús. Aðkoma er frá Bakkavegi. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30. Brennan er í umsjón Skátafélagsins Svana á Álftanesi.
Kort á Google Maps sem sýnir Bakkaveg.
Við Sjávargrund kl. 21:00
Kveikt verður í brennunni við Sjávargrund kl. 21. Knattspyrnudeild Stjörnunnar sér um brennuna en Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um flugeldasýningu.
Sjávargrund á Google Maps - korti