Taktu þátt í vali á íþróttamönnum Garðabæjar 2016
Fimm karlar og fimm konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2016.
Fimm karlar og fimm konur eru tilnefndar af ÍTG (íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar) sem íþróttamenn Garðabæjar 2016. Einn karlmaður og ein kona verða valin, annars vegar sem íþróttakarl og hins vegar íþróttakona Garðabæjar 2016.
Vefkosning fer fram á vef Garðabæjar og stendur til og með 3. janúar.
Upplýsingar um íþróttamennina sem eru tilnefndir og afrek þeirra.
Vefkosning - íþróttamenn Garðabæjar 2016
Tilkynnt verður um kjör íþróttamanna Garðabæjar í fimleikasalnum í Ásgarði sunnudaginn 8. janúar 2017 kl. 13. Þar verða einnig veittar fleiri viðurkenningar vegna íþrótta- og æskuýðsstarfs.
Allir eru velkomnir á hátíðina.
Myndin er af íþróttamönnum Garðabæjar 2015.