24. sep. 2014

Nemendur Álftanesskóla gróðursettu trjáplöntur á skólalóðinni

Nemendur 6. bekkja Álftanesskóla unnu þrekvirki við að fegra skólalóðina með því að gróðursetja 312 trjáplöntur ásamt kennurum sínum og skólastjóra
  • Séð yfir Garðabæ
Nemendur 6. bekkja í Álftanesskóla unnu þrekvirki við að fegra skólalóðina sína með því að gróðursetja 312 trjáplöntur ásamt kennurum sínum og skólastjóra. Starfsfólk garðyrkjudeildar Garðabæjar skipulagði og leiðbeindi við gróðursetninguna. Gróðurbeðin eru á nýjum hluta lóðarinnar sem hefur verið í vinnslu. Á þessum hluta lóðarinnar verða líka ný leiktæki sett upp eins og hlaupaköttur og einnig er þar sparkvöllur.

Skólalóðin er nú hlýlegri eftir gróðursetningu nemendanna. Krakkarnir jöfnuðu og sléttuðu beðin eftir gróðursetningu og dreifðu sandi yfir til að minnka líkur á að illgresi vaxi í þeim.