15. nóv. 2016

Arnarnesvegur tekinn í notkun

Umferð var hleypt á nýjan kafla Arnarnesvegar í dag, þriðjudaginn 15. nóvember. Vegurinn liggur frá mislægum vegamótum við Reykjanesbraut og austur fyrir Fífuhvammsveg
  • Séð yfir Garðabæ

Umferð var hleypt á nýjan kafla Arnarnesvegar í dag, þriðjudaginn 15. nóvember, en reiknað er með að vegurinn létti á umferðarþunga á Fífuhvammsvegi í Kópavogi.  Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Kópavogs, Garðabæjar og veitufyrirtækja.

Það voru vegamálastjóri Hreinn Haraldsson og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi sem hleyptu umferðinni á með aðstoð Dofra Eysteinssonar frá Suðurverki. sem var verktakinn ásamt Loftorku.

Verkið fólst í því að leggja nýjan 1,6 km langan veg frá mislægum vegamótum við Reykjanesbraut og austur fyrir Fífuhvammsveg. Að loknu útboði var samið við Suðurverk og Loftorku Reykjavík um verkið og hófust framkvæmdir í september 2015. Verklok voru áætluð 1. október 2016 en seinkaði af ýmsum ástæðum. Á vegkaflanum voru gerð þrenn gatnamót og tvenn undirgöng. Einnig var sett upp veglýsing, stígar gerðir, land mótað, hljóðvarnir settar upp og annað sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu. Heildarkostnaður er áætlaður um 980 m.kr.

Þrátt fyrir að nú sé umferð hleypt á veginn og hann tekinn í notkun er ýmsum frágangi ólokið en vinna við hann tefur ekki verkið. Frágangurinn verður að mestu lokið 10. desember. Hafin er smíði göngubrúar yfir Arnarnesveg með gerð undirstaða á móts við Þorrasali og kirkjugarð og verður þeirri framkvæmd lokið um mitt næsta ár.

Í þingsályktunartillögu að samgönguáætlun 2015-2026 sem lögð hefur verið fyrir Alþingi en er óafgreidd, er gert ráð fyrir því að tengja Arnarnesveg við Breiðholtsbraut á síðasta tímabili áætlunarinnar 2023-2026 og létta þar með á umferðinni í efri byggðum Kópavogs.

Sjá einnig frétt og myndir á vef Vegagerðarinnar.