Bleikur Garðabær
Starfsfólk Garðabæjar og nemendur í skólum bæjarins voru fagurbleikir á bleika deginum sem haldinn er í dag og sýndu þannig samstöðu með átaki Bleiku slaufunnar gegn krabbameini í konum.
Tilgangur bleika dagsins er að vekja athygli á árvekniátaki Bleiku slaufunnar sem í ár er helgað brjóstakrabbameini.
Krabbameinsfélagið hvetur alla til að senda skemmtilegar, bleikar myndir af sér og mömmu, vinahópum og vinnufélögum á netfangið bleikaslaufan@krabb.is. Myndirnar verða birtar á facebooksíðu Bleiku slaufunnar. Merkið myndirnar #bleikaslaufan #fyrirmömmu.
Myndirnar sem fylgja fréttinni eru frá bæjarskrifstofunum, Sjálandsskóla, Flataskóla, Bæjarbóli og leikskólanum Ökrum.
Nánari upplýsingar um átakið og bleika daginn er á vef Bleiku slaufunnar.