7. okt. 2016

Léttur og leikandi jazz í sal Tónlistarskólans

Kennarar úr Tónlistarskóla Garðabæjar, sem allir eru á meðal fremstu jazztónlistarmanna landsins, bjóða Garðbæingum til tónleika, þriðjudagskvöldið 11. október kl. 20. Þeir sem fram koma eru: Sunna Gunnlaugsdóttir, Ómar Guðjónsson, Jón Óskar Jónsson, Þorgrímur Jónsson, Jakob Hagedorn-Olsen og Gunnar Hilmarsson.
  • Séð yfir Garðabæ

Kennarar úr Tónlistarskóla Garðabæjar, sem allir eru á meðal fremstu jazztónlistarmanna landsins, bjóða Garðbæingum til tónleika, þriðjudagskvöldið 11. október kl. 20.

Tónleikarnir verða í sal Tónlistarskólans við Kirkjulund.

Þeir sem fram koma eru: Sunna Gunnlaugsdóttir, Ómar Guðjónsson, Jón Óskar Jónsson, Þorgrímur Jónsson, Jakob Hagedorn-Olsen og Gunnar Hilmarsson.

Tónleikarnir eru styrktir af menningar- og safnanefnd Garðabæjar.

Allir hjartanlega velkomnir  - ókeypis aðgangur.

Tónleikarnir eru þeir fyrstu í tónleikaröð kennara veturinn 2016-2017.  Næstu tónleikar verða haldnir þriðjudagskvöldið 29. nóvember nk. en þá verða strengja- og píanótónleikar með rússneskri og austur-evrópskri tónlist. 

Viðburður á facebook