3. okt. 2016

Leitað til íbúa við gerð fjárhagsáætlunar

Íbúar Garðabæjar eru hvattir til að taka þátt í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2017-2020 með því að senda inn tillögur og ábendingar.
  • Séð yfir Garðabæ

Íbúar Garðabæjar eru hvattir til að taka þátt í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2017-2020 með því að senda inn tillögur og ábendingar.

Ábendingar verða að berast fyrir 1. nóvember 2016.

Ábendingarnar geta snúið að:

• Tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar
• Nýjum verkefni sem bærinn ætti að sinna
• Verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins

Á vef Garðabæjar eru skjöl um fjármál bæjarins sem hægt er að hafa til hliðsjónar og form til að senda inn ábendingu.

Smelltu hér til að nálgast gögnin og ábendingaformið.

Láttu heyra í þér!