12. ágú. 2016

Myndlistarsýning og tónleikar í Króki

Um helgar í ágúst er hægt að skoða myndlistarsýningu í hlöðunni/fjósinu við Krók. Alla laugardaga eru tónleikar í hlöðunni í á vegum Jóhönnu Halldórsdóttur altsöngkonu og Helgu Aðalheiði Jónsdóttur blokkflautuleikara
  • Séð yfir Garðabæ

Bærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar frá kl. 13-17.  Um helgar í ágúst er jafnframt hægt að skoða myndlistarsýningu í hlöðunni/fjósinu við Krók. Á sýningunni eru verk eftir Álfheiði Ólafsdóttur sem var með vinnuaðstöðu í Króki fyrr í vor þar sem sveitarómantíkin, húmorinn, kærleikurinn og litagleðin eru í hávegum höfð.  Sjá nánar um sýninguna hér.

Í ágúst verða tónleikar í hlöðunni/fjósinu við Krók á vegum Jóhönnu Halldórsdóttur altsöngkonu og Helgu Aðalheiði Jónsdóttur blokkflautuleikara alla laugardaga kl. 14 og 16.    Á efniskránni eru íslensk þjóðlög, ásamt tveggja radda lögum eftir framnska miðaldatónskáldið Guillaume de Machaut (1300-1377) og verk eftir Hilmar Örn Hilmarsson. Þar verður boðið upp á spennandi hljóðupplifun í sögulegu og fallegu umhverfi. Selt er inn á tónleikana og miðasala er á staðnum. Sjá nánari upplýsingar hér í viðburðadagatalinu.

Bærinn Krókur opinn alla sunnudaga frá kl. 13-17

Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923 og er nú varðveittur með upprunalegu innbúi síðustu ábúenda, hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg bjó í Króki allt til 1985 en eftir að hún lést gaf fjölskyldan Garðabæ bæjarhúsin ásamt innbúi þannig að hægt væri að varðveita Krók.  Systurnar Elín og Vilborg Vilmundardætur höfðu yfirumsjón með hvernig húsgögnum og munum var raðað þannig að það væri eins og tíð móður þeirra, enda verður sú tilfinning sterk þegar gengið er um bæinn að gamla konan hafi bara rétt skroppið af bæ. Krókur er gott dæmi um alþýðuheimili frá fyrri hluta 20. aldar og má þar sjá ýmislegt forvitnilegt sem sumir muna eftir frá fyrri tíð.

Tilvalið er að fara í göngutúr um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu) við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar.