3. ágú. 2016

Gervigrasi skipt út í Ásgarði

Framkvæmdir eru hafnar við að skipta út gervigrasi á þremur af æfingavöllum Stjörnunnar í Ásgarði.
  • Séð yfir Garðabæ

Framkvæmdir eru hafnar við að skipta út gervigrasi á þremur af æfingavöllum Stjörnunnar í Ásgarði. Þetta er fyrsti áfanginn í endurnýjun á öllu yfirborði gervigrasvalla í bænum.

Endurnýjun vallanna var boðin út í vor og í kjölfarið var samið við fyrirtækið Metatron. Þau efni sem notuð eru í framkvæmdinni uppfylla öll viðmið sem lagt var upp með.  

Vinsamlegast athugið að vegna framkvæmdanna er takmarkað aðgengi um göngustíginn milli Ásgarðslaugar og stúkunnar, þessa dagana.