16. jún. 2016

Fjölbreytt dagskrá á 17. júní í Garðabæ

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá er í boði á 17. júní hátíðarhöldunum í Garðabæ nk. föstudag. Morgundagskráin fer fram víðs vegar um Garðabæ og hefst kl. 09 við Urriðavatn þar sem boðið verður upp á kanósiglingar og í Vífilsstaðavatni verður ókeypis veiði allan daginn.
  • Séð yfir Garðabæ

Fjölbreytt  og skemmtileg dagskrá er í boði á 17. júní hátíðarhöldunum í Garðabæ nk. föstudag.

Tímasett dagskrá er hér í viðburðadagatalinu.

Morgundagskráin fer fram víðs vegar um Garðabæ og hefst kl. 09 við Urriðavatn þar sem boðið verður upp á kanósiglingar og í Vífilsstaðavatni verður ókeypis veiði allan daginn.  Á Álftanesi verður hið árlega 17. júnímót Golfklúbbs Álftaness sem hefst kl. 10.  Sundlaugin á Álftanesi verður með ókeypis aðgang frá kl. 10-14 og gestir fá einnig ókeypis aðgang þennan dag í Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi sem er opið frá kl. 12-17. 

Hátíðardagskrá á Álftanesi – Agla Bríet, Rebekka Blöndal, hoppukastalar, kaffihlaðborð,  o.fl.

Hátíðardagskráin á Álftanesi hefst með helgistund í safnaðarheimilinu að Brekkuskógum kl. 10 og kl. 10:15 verður gengið í skrúðgöngu að hátíðarsvæði við Álftaneslaug.  Þar verður hátíðarsvið þar sem fram koma m.a. Agla Bríet úr Ísland got talent, Rebekka Blöndal úr The Voice og einnig verður atriði úr Latabæ.  Á svæðinu verða einnig hoppukastalar og skátafélagið Svanir verða með sjoppu.  Síðar um daginn verður hið margrómaða kaffihlaðborð Kvenfélags Álftaness frá kl. 14.30-16 í hátíðarsal Álftaness.

Hátíðardagskrá við Garðaskóla – hljómsveitin Dikta, Latibær, leynigestur, fimleikasýning, leiktæki, kaffihlaðborð o.fl.

Kl. 13:15 verður hátíðarstund í Vídalínskirkju þar sem nýstúdent flytur ávarp.  Skrúðganga leggur af stað kl. 14 frá Vídalínskirkju að hátíðarsvæði við Garðaskóla.  Dagskráin á hátíðarsviði við Ásgarð hefst kl. 14.40 með ávarpi bæjarstjórnar, meðal þeirra sem koma fram eru Dikta, Agla Bríet, Solla stirða og íþróttaálfurinn, og leynigestur.  Inni í Ásgarði verður boðið upp á fimleikasýningu frá fimleikadeild Stjörnunnar.  Á hátíðarsvæðinu verða hoppukastalar og ýmis leiktæki, andlitsmálun og sölutjöld.  Hið árlega kaffihlaðborð Kvenfélags Garðabæjar verður haldið í Garðaskóla kl. 14.30-17.

Dagskráin að morgni og degi til er í umsjón Skátafélagsins Vífils.

Hátíðartónleikar að kvöldi í Kirkjuhvoli – Salon Islandus og Fjóla Kristín Nikulásdóttir

Um kvöldið verða haldnir hátíðartónleikar í safnaðarheimili Vídalínskirkju, Kirkjuhvoli, kl. 20.00. Þar stígur hljómsveitin Salon Islandus á svið ásamt Fjólu Kristínu Nikulásdóttur sópransöngkonu.  Á efnisskránni er hressileg vínartónlist, marsar, valsar og polkar en einnig lög úr smiðju Leonards Bernstein.  Aðgangur að tónleikunum er ókeypis í boði Garðabæjar og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.  Sjá nánar hér.