28. ágú. 2014

Opið hús í Króki sunnudaginn 31. ágúst

Sunnudaginn 31. ágúst eru síðustu forvöð í sumar að skoða bæinn Krók á Garðaholti. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Krókur er staðsettur á Garðaholti rétt hjá samkomuhúsinu og stutt frá Garðakirkju, nánar tiltekið á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Bærinn hefur verið opinn alla sunnudaga í sumar og verður opinn sunnudaginn 31. ágúst frá kl. 13-17. Þá er jafnframt síðasti dagur sýningar á málverkum Rúnu K. Tetzschner og þæfðum ullarverkum Kömmu Níelsdóttur í hlöðunni við Krók.
  • Séð yfir Garðabæ

Sunnudaginn 31. ágúst eru síðustu forvöð í sumar að skoða bæinn Krók á Garðaholti.  Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923.  Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. 

Krókur er staðsettur á Garðaholti rétt hjá samkomuhúsinu og stutt frá Garðakirkju, nánar tiltekið á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar.  Bærinn hefur verið opinn alla sunnudaga í sumar og verður opinn sunnudaginn 31. ágúst frá kl. 13-17. Þá er jafnframt síðasti dagur sýningar á málverkum Rúnu K. Tetzschner og þæfðum ullarverkum Kömmu Níelsdóttur í hlöðunni við Krók. Sýningin nefnist Náttúruævintýri í Krókshlöðunni og þær mæðgur Rúna og Kamma segja frá sýningunni og bjóða upp á kaffi og klatta.  Rúna hefur jafnframt starfað sem safnvörður í Króki í sumar og veitir leiðsögn um bæinn á sunnudaginn. Aðgangur að Króki er ókeypis og allir eru velkomnir á opna húsið næsta sunnudag.

Vinnuaðstaða fyrir listamann í Króki

 Í Króki er einnig herbergi sem hefur verið  nýtt sem vinnuaðstaða fyrir listamenn og nýverið var auglýst eftir umsóknum listamanna/fræðimanna um afnot af vinnuaðstöðunni.  Vinnuaðstaðan er í boði 1-3 mánuði í senn veturinn 2014-2015 sjá nánari upplýsingar hér.